Er allt leyfilegt sem ekki er beinlínis skaðlegt? Um skólastarf á villigötum og skeytingarleysi menntayfirvalda. (upptaka af málþingi)

Upptöku af erindi sem ég flutti á málþingi Siðmenntar um veraldlegt samfélag 8. maí s.l. má nú sjá hér á síðunni. Erindi mitt kallaðist "Er allt leyfilegt sem ekki er beinlínis skaðlegt? Hugleiðingar um skólastarf á villigötum og skeytingarleysi menntayfirvalda."

http://www.youtube.com/watch?v=N_jKQ9Ulfpc

og seinni hluti erindisins.

http://www.youtube.com/watch?v=Ej8HPjKftHQ

jb 


Þetta hlýtur að vera misskilningur. Sigurður fékk fálkaorðuna fyrir frábær störf sín 2007.

Það getur bara ekki verið að það eigi að handtaka Sigurð nokkurn Einarsson fyrir eitthvað brask. Eldfjallafræðingurinn okkar Ólafur Ragnar (sem aldrei gerir mistök) sæmdi Sigurð fálkaorðu fyrir sín stórkostlegu störf í fjármálaheiminum. Við vitum það vel að eldfjallafræðingurinn gerir aldrei mistök og sæmir ekki neina lúða fálkaorðu. Málið hlýtur því að vera á misskilningi byggt.

http://forseti.is/Falkaordan/Falkaordan2007/

JB


mbl.is Ekki búið að handtaka Sigurð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er allt leyfilegt í skólastarfi sem ekki er beinlínis skaðlegt (um málþing 8. maí)

 Laugardaginn 8. maí n.k. heldur Siðmennt málþingið Veraldlegt samfélag - gildi þess og framtíð í Öskju Háskóla Íslands kl. 10.00-14.00. Flutt verða fimm erindi auk pallborðsumræðna. Ég mun flytja erindi sem ég kalla Er allt leyfilegt sem ekki er beinlínis skaðlegt, hugleiðingar um skólastarf á villigötum og skeytingarleysi menntayfirvalda.  Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir.

Ég var rétt í þessu að senda frá mér smá upplýsingar um það hvað ég mun fjalla um með eftirfarandi orðum:

„Það er svo þægilegt að vera ósjálfráða" skrifaði Immanuel Kant í stuttri grein árið 1784 um leið og hann hvatti fólk til þess að hugsa sjálfstætt. Þegar litið er til skólastarfs á Íslandi á sjónarmið Kants á ósjálfræði fullt erindi. Þeir sem hafa séð ástæðu til að hugsa sjálfstætt og gagnrýna skólastarf  hafa  of oft verið litnir hornauga og fengið viðbrögð á borð við þessi:  „Hva,  það skaðar nú ekki börnin þó......."

Vegna þess hversu algeng þessi viðbrögð eru er ástæða til þess að spyrja hvort allt eigi að vera leyfilegt í skólum landsins sem ekki er beinlínis skaðlegt. Í því samhengi mun sjónum einkum verða beint að trúarlífi innan skólanna, gagnrýnisleysi skólastjórnenda sem oftar en ekki eru „þrælar" gamalla hefða, skort á fjölmenningarlegri færni og síðast en ekki síst skeytingarleysi menntayfirvalda á skólastarfi.

JB


Siðfræðikennsla í rúm 20 ár

Í kjölfar rannsóknarskýrslu Alþingis hefur mikið verið rætt um mikilvægi þess að efla hlut gagnrýnnar hugsunar og siðfræði í skólum landsins og samfélaginu almennt. Svo sannarlega er kominn tími til og sætir það furðu hversu yfirvöld menntamála hafa sofið á verðinum  alla tíð. Ekki eru þetta þó nýjar uppgötvanir fyrir alla. Frá árinu 1989 hefur Siðmennt, félag siðrænna húmanista á Íslandi lagt megináherslu á kennslu siðfræði og gagnrýnnar hugsunar á undirbúningsnámskeiðum sínum fyrir borgaralega fermingu, en alls hafa tæplega 1500 ungmenni sótt námskeið Siðmenntar. Siðmennt hefur margoft  bent yfirvöldum menntamála á mikilvægi gagnrýnnar hugsunar og siðfræði í skólastarfi en því miður iðulega talað fyrir daufum eyrum ráðamanna. Einnig hefur félagið margoft komið með ábendingar um það sem betur má fara og lítur beinlínis að mannréttindum. Fyrir rúmu ári síðan sendi félagið erindi til menntamálaráðherra þar sem ráðherrann er hvattur til þess að grípa til aðgerða til að rétta hlut þeirra  fjöldskyldna  sem beittar eru ranglæti í skólum landsins  vegna trúar- eða lífsskoðana sinna. Skólastjórnendur virðast mega gera nánast hvað sem er í skólum landsins án þess að nokkur gagnrýnin hugsun komi þar nærri og án þess að yfirvöld menntamála hafi á því nokkra skoðun. Eflaust kallast þetta í ráðuneytinu frelsi eða sjálfstæði skóla, en er í raun ekkert annað en skeytingarleysi gangvart því sem erlendis hefur verið talið til mannréttindamála. Þetta er sambærileg vitleysa og viðgekkst á milli stjórnvalda og fjármálaheimsins þar sem frelsi þýddi í raun ekkert annað en skeytingarleysi.Staðfesting á slíku skeytingarleysi af hálfu ráðuneytisins um starfsemi skólanna barst síðan félaginu sem svar við erindinu sem áður er greint frá, en þar segir m.a. að dregist hafi að svara erindinu vegna anna. Mannréttindamálin frestast vegna anna í heilt ár!  Og svo er talað um skort á siðferðilegri ábyrgð á Íslandi. Hverjar eru fyrirmyndirnar ef ekki stjórnvöld á hverjum tíma?

Ég lýsi eftir pólitískri ábyrgð, siðferðilegum heilindum gagnvart  þeim sem í hlut eiga og ríkari áhuga á mannréttindamálum í ráðuneyti menntamála í stað skeytingarleysis.

JB

Greinin birtist í Fréttablaðinu 1. maí 2010.

Umræða dagsins í dag fær mann til að rifja upp gömul tilboð sem enginn sá ástæðu til að taka

Og allir héldu að maður væri annaðhvort að djóka eða svona ógeðslega öfundsjúkur. Sjá nánar eftirfarandi tengla:

http://www.dv.is/frettir/2009/4/12/bydur-sidfraedinamskeid-fyrir-sjalfstaedismenn/

og

http://www.smugan.is/pistlar/raedur/nr/1850

og

http://johannbj.blog.is/blog/johannbj/entry/198769/

En svona heldur nú lífið áfram að koma manni skemmtilega á óvart.

JB


SÁÁ, spilavítið og spilakassarnir

Fram kom í fréttum Stöðvar 2 í kvöld í viðtali við starfsmann SÁÁ að samtökin eru ekki hrifin af þeirri hugmynd að opna spilavíti hér á landi. Það fyrsta sem mér datt í hug þegar ég hlustaði á viðtalið var þetta:

Ætli SÁÁ fjármagni ennþá starfsemi sína með spilakössum?

JB


Forval VG, stuðningur í 3-5 sæti vel þeginn

Hvet alla flokksmenn VG í Reykjavík að taka þátt í forvalinu á morgun laugardag. Stillum upp sterkum lista fyrir kosningarnar í vor.

Stuðningur í 3-5 sæti vel þeginn. :-)

Jóhann


Ræðan í borgarstjórn

Við síðustu borgarstjórnarkosningar var ég í 8. sæti á lista VG og svo gerðist það í desember s.l. að ég var kallaður sem varamaður inn á borgarstjórnarfund. Hér koma nokkur  brot úr ræðu minni á fundinum, en þessi brot sýna þankagang minn í pólitíkinni:

 

"Forseti  góðir borgarfulltrúar

Það hefur sýnt sig að undanförnu að allmargir í samfélagi okkar eru flinkir við að telja krónur og aura. Og það er gott, enda veitir víst ekki af á þessum síðustu og verstu. Ég geri ekki lítið úr því. En þrátt fyrir mikilvægi þess að hagræða, eða spara eins og maður orðar það í venjulegu heimilisbókhaldi þá stendur engu að síður eftir þessi spurning: Hver eru brýnustu viðfangsefni stjórnmálamanna í borginni á tímum efnahagslegs samdráttar?

Áður en þeirri spurningu er svarað er mikilvægt að hafa í huga hvað gerist þegar þegar kreppir að? Jú einfaldasta svarið við þessari spurningu er það að lífsgæði fjölmargra rýrna, hvort sem í hlut eiga börn eða fullorðnir. Og hvað gerist þegar fólk sér fram á skert lífskjör?

Hvað gerist þegar fólk missir vinnuna?

Þegar unglingarnir okkar fá færri vinnudaga í vinnuskólanum og enga möguleika á að samræma vinnutíma við tómstunda og íþróttastarf  eða samveru með fjöldskyldunni.

Hvað gerist þegar unglingarnir okkar á framhaldsskólastigi fá yfirhöfuð ekki sumarvinnu?

Hvað gerist ef dregið er úr þjónustu frístundaheimila? Svo ég dragi nú aðeins fram örfáar spurningar.

Jú samstöðu og samheldni borgarbúa er stefnt í hættu, aukin hætta er á áhættuhegðun

 

Mikilvægasta verkefni stjórnmálamanna á tímum efnhagslegs samdráttar er að stuðla að félagslegu réttlæti og siðferðilegri ábyrgð.

Fyrir ekki svo mörgum árum bárust okkur oft fréttir af miklum uppþotum í innflytjendahverfum franskra stórborga. Margir voru fljótir að draga þá ályktun að hér hlyti að vera eingöngu um hreint og klárt trúarbragðastríð að ræða þar sem múslimar og kristnir áttust við. En þeir sem hinsvegar rannsökuðu málin komust að annarri niðurstöðu. Rót vandans fólst ekki í árekstri mismunandi menningarheima eða mismunandi trúar- eða lífsskoðunum heldur í því að félagslegu réttlæti var ábótavant. Fólki í þessum hverfum, einkum ungu fólki var talin trú um það að það hefðí sömu réttindi og tækifæri til að blómstra í lífinu og aðrir íbúar á meðan það upplifði allt annað heldur en því var talin trú um.

Á tímum sem þessum skiptir meginmáli að fólk finni lífi sínu tilgang og það skiptir öllu máli að unga fólkið okkar hafi ástæðu til að fara á fætur á morgnanna, því ef það festist í for atvinnuleysis þá er voðinn vís, skammt kann að verða í áhættuhegðun og hver veit hvenær sá sem ekki hefur ástæðu til að vakna að morgni mun fara á fætur þegar birta fer í efnahagsmálum?

Að koma í veg fyrir að sambærilegir hlutir eigi sér stað hér í borg, að koma í veg fyrir það að fólk upplifi sig afskipt og án félagslegs réttlætis er eitt mikilvægasta verkefni borgaryfirvalda.

Og hvernig fer maður að við slíkt? Jú annarsvegar með því að leggja megináherslu á að stuðla að samstöðu borgarbúa en ekki sundrung. Og hinsvegar með því að leggja megináherslu á siðferðilega ábyrgð í pólitískum störfum. Hafa stjórnmálamenn siðferðileg grunnhugtök að leiðarljósi þegar þeir taka ákvarðanir? Hvernig er hægt að breyta siðferðilega rétt þegar allt er á hausnum kann einhver að spyrja. En það er ekki síst á slíkum tímum sem afar brýnt er að dusta rykið af siðferðilegum hugtökum á borð við réttlæti, jafnrétti, samstöðu og samfélagslega ábyrgð. Allt sem við gerum hvort sem okkur líkar betur eða verr hefur áhrif siðferðilega séð.

Við höfum verið að horfa upp ákveðna tilburði í borginni til þess að sundra fólk frekar en að sameina það:  „leikskólastjórum boðið í kokteil á meðan aðrir starfsmenn fá ekki jólagjafir var ein fréttinn í vikunni. Og svo var málið afsakað með því að þetta hafi nú bara kostað kr. 200.000.  Nú ætla ég ekki að fullyrða að þessi frétt sé rétt, enda trúi ég ekki öllu því sem fjölmiðlar segja en ef hún er rétt þá er aðalmálið ekki sú upphæð sem varið er í veitingarnar heldur sú breytni sem mjög líklega er til þess fallin að stuðla að óeiningu á meðal borgarstarfsmanna, þar sem einn er metinn meira en annar á samdráttartímum.

Það ber ekki á öðru en að borgarstjórnameirihlutanum sé ekkert endilega í mun að þjappa íbúunum saman á þessum tímum. Þjappa íbúunum saman burtséð frá allt og öllu, burtséð frá kyni, kynhneigð, fötlun, uppruna og lífsskoðunum."

Síðar í ræðu minni segi ég svo:

"Í nýjum bæklingi frá Mannréttindaskrifstofu Reykjavíkur er tekið dæmi um mismunun vegna trúarskoðana. Þar segir:

„Foreldrar Bergþóru, sem standa utan trúfélaga, vilja ekki að hún læri kristin fræði eða fari í kirkju á skólatíma. Bergþóru er boðið að sitja á bókasafninu, án þess að fá kennslu, á meðan kristindómsfræðslan stendur yfir. Foreldrarnir vilja hinsvegar að hún sitji við sama borð og hin börnin og njóti fræðslu á meðan."

Grundvallarmisskilnings gætir í þessu dæmi. Almennt eru foreldrar ekki bara ósáttir við að börn þeirra séu látin hanga á bókasafni á meðan trúarathafnir fara fram. Foreldrar eru fyrst og fremst ósáttir við að starfsemi opinberra skóla sé þannig háttað að þeir neyðist til að láta taka börn sín út úr venjulegu skólastarfi, frá samnemendum sínum og félögum.

Það er algjör óþarfi að stuðla markvisst að sundrungu íbúanna, og ekki síst þegar í hlut eiga börn og unglingar."

Stuttu síðar segi ég svo:

"Vinstrihreyfingin grænt framboð leggur til að útsvar verði hækkað til þess að mæta að einhverju leiti þeim efnahagsvanda sem við blasir. Er eitthvað rangt við það að útsvar verði hækkað á meðan við erum að komast yfir mesta vandann? Ef illa er farið með skattfé almennings þá má vissulega færa rök fyrir því að hér sé ekki um góða hugmynd að ræða. En ef umræddri útsvarshækkun verði varið til að styrkja velferðina, félagslega réttlætið og siðferðilegu ábyrgðina sem við höfum gagnvart samborgurum okkar þá er þetta bara hið besta mál.

Skemmst er að minnast fregna sem bárust fyrr á þessu ári þar sem ýmsir þýskir eintaklingar sendu stjórnvöldum þar í landi bón um að frekari skattahækkanir því þeir töldu sig vera aflögufæra og vildu leggja sitt af mörkum til samneyslunnar. Það má eiginlega segja að ég leggi sambærilega bón fyrir borgaryfirvöld af því að mig langar svo að leggja meira af mörkum til samneyslunnar í þágu þeirra sem raunverulega þurfa á því að halda. Þetta er fyrst og fremst siðferðileg skuldbinding."

JB

 


Tökum þátt í forvali VG á laugardag. Gef kost á mér í 3.-5. sæti.

Núna á laugardaginn heldur VG í Reykjavík forval vegna borgarstjórnarkosninga. Fjöldi frambærilegra einstaklinga býður sig fram til starfa í þágu borgarbúa. Sjálfur hef ég ákveðið að gefa kost á mér í 3.-5. sæti. Í nýútkomnum kynningarbæklingi um frambjóðendur er kynning mín svohljóðandi:

"Jóhann Björnsson er fæddur í Keflavík 1966 . Gekk hann ungur til liðs við Alþýðubandalagið eftir að hafa enn yngri gengið til liðs við Samtök herstöðvaandstæðinga. Í pólitík skilgreinir Jóhann sig sem  sósíalista af „gamla skólanum" eða „klassískan komma" eins og hann orðar það sjálfur.

Jóhann er kvæntur Margréti Einarsdóttur og eiga þau tvö börn. Jóhann lauk MA prófi í heimspeki við Kaþólskan háskóla í Belgíu. Undanfarin ár hefur hann kennt við Réttarholtsskóla, starfað í Alþjóðahúsi og kennt  siðfræði fyrir starfsstéttir.  Árið 2006 þegar Jóhanni ofbauð græðgisvæðingin bauð hann forystmönnum í fjármálalífinu upp á siðfræðinámskeiðið „Hversu mikið er nóg?" Því miður sáu fjármálamennirnir  ekki ástæðu til þess að þiggja boðið. Nokkru síðar bauð hann upp á siðfræðinámskeið handa forystufólki í verkalýðshreyfingunni sem bar heitið „Siðfræði handa Gunnari Páli". Ekki sáu forystumenn þar á bæ heldur ástæðu til að mæta. Í mörg ár hefur Jóhann kennt á undirbúningsnámskeiðum vegna borgaralegrar fermingar. Í frístundum sínum æfir Jóhann Júdó og dansar argentískan tangó.

Jóhann skipaði 8. sætið á framboðslista VG við síðustu borgarstjórnarkosningar og hefur á kjörtímabilinu verið í barnaverndarnefnd og varamaður í tveimur hverfisráðum og á nú sæti í mannréttindaráði.

Í borgarmálum aðhyllist Jóhann sjónarmið  hæglætishreyfingarinnar sem hefur verið að ryðja sér til rúms víða um heim. Hæglætishreyfingin berst fyrir manneskjulegra samfélagi, gegn mengun, græðgi  og umhverfi sem orsakar streitu. Ánægja á undan hagnaði, manneskjur á undan steinsteypu, hæglæti á undan hraða eru á meðal stefnumiða hæglætishreyfingarinnar.

Jóhann leggur mikla áherslu á að siðfræðin fái vægi þegar pólitískar ákvarðanir eru teknar."


Hvernig kennir maður gagnrýna hugsun?

Þriðjudaginn 2. febrúar mun ég ræða um það hvernig gagnrýnin hugsun er kennd á málstofu sem haldin verður á vegum hópsins Efast á kránni. Málstofan hefst kl. 21.00 og verður haldin á Celtic Cross Hverfisgötu 26.

Allir velkomnir.

JB


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband