Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
11.10.2007 | 22:58
Svakalega hefði Sókrates verið þreyttur á Sigmari í Kastljósinu
Ég hef lengi verið að kenna unglingum heimspeki þar sem grundvallaratriðið er að ræða saman af yfirvegun þannig að eitthvað gangi í samræðunum, þannig að ákveðin virðing eigi sér stað gagnvart samræðunni sem samskiptaformi.
Nú hlustaði ég fyrr í kvöld á Kastljósið þar sem Sigmar Guðmundsson ræddi við forystumenn nýja meirihlutans í borginni og guð minn góður hversu meistari samræðunnar Sókrates sjálfur hefði verið þreyttur á Sigmari ef hann hefði verið uppi um 400 árum fyrir okkar tímatal og verið þátttakandi í samræðum í Aþenu til forna.
Karl greyið (þeas Sigmar) spurði og spurði en leyfði varla nokkrum manni að svara, hann greip frammí og hvessti sig og var frekar æstur og ég veit ekki hvað. Þetta var eiginlega æðislegt sýnishorn í því hvernig góð samræða á ekki að fara fram. Það er spurning hvort ekki megi nota þennan þátt í heimspekikennslu um það hvernig samræður eiga ekki að fara fram.
Þarna skorti gjörsamlega alla yfirvegun umræðustjórnandans sem nauðsynleg er öllum þeim sem vilja komast til botns í spennandi málum.
Það skyldi þó ekki vera að Sigmar sé sjálfstæðismaður sem hugsanlega hefur haft áhrif á frammistöðu hans í umræðunum?
Sjá þetta óborganlega kennslumyndband í því hvernig ekki á að ræða saman:
http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4365523
JB
10.10.2007 | 20:39
Ætli gamli góði Villi eigi góða ferðatösku?
Eftir að hafa fylgst með atburðarrás dagsins er útlit fyrir það að best sé fyrir gamla góða Villa að fara að pakka og koma sér af stað út úr ráðhúsinu. Skyldi hann eiga góða ferðatösku? Ekki væri úr vegi að hann tæki Björn Inga með sér.
Til frekari fróðleiks um þann gamla góða má lesa á Vísi.is:
http://www.visir.is/article/20071009/FRETTIR01/71009028
JB
Í dag er þess minnst að fjörtíu ár eru liðin frá því að leppar bandarísku leyniþjónustunnar CIA myrtu byltingarmanninn Ernesto Che Guevara í Bólivíu. Maður efast ekki um það við þessi tímamót að full ástæða sé til þess að dusta rykið af gömlu góðu siðferðishugmyndunum sem Che fyldi í pólitík þar sem maður horfir upp á endalausa spillingu íslenskra pólitíkusa. Pólitíkusa sem hugsa ekkert um annað en að reyna að hafa af almenningi sem mest fé fyrir sig og sína og ljúga og svíkja til þess að ná markmiðum sínum ef þeim svo sýnist. Við horfum upp á pólitíkusa sem finnst allt í lagi að sinna ekki störfum sínum fyrir almenning vegna þess að þeir þurfa að sýnast og baða sig í seðlum á meðal auðmanna.
Þó vissulega megi deila um Che þá má hann eiga það að hafa haft heilbrigða afstöðu til vinnunnar, þeirrar verðmætasköpunar sem hún gefur af sér og réttlátrar skiptingar veraldlegra gæða. Virðingin fyrir launavinnu almennings og réttlát skipting lífsins gæða hefur verið að lúta í lægra haldi fyrir græðgisvæðingunni og hrokanum sem forystumenn í atvinnulífinu og stjórnmálamenn standa fyrir og sýna launafólki á degi hverjum. Fjölmiðlamenn dansa síðan æ oftar í kringum þetta sjálftökulið í gagnrýnisleysi sínu og hneykslast á þeim sem voga sér að gera athugasemdir við að það skuli taka verkamann 50 ár að vinna sér inn fyrir mánaðarlaunum forstjóra.
Che má eiga það að hafa barist gegn ægivaldi fjármagnsins og græðginnar. Fyrir það er pólitíkin hans í fullu gildi.
Hasta la victoria siempre!
JB
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
8.10.2007 | 18:52
Sátt um hvað?
Svandís Svavarsdóttir borgarfulltrúi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs spyr: Sátt um hvað?:
"Ljóst er að sáttaniðurstaða Sjálfstæðismanna er sátt um áframhaldandi völd í Ráðhúsinu í Reykjavík. Hún er ekki sátt um vinnubrögð, ekki sátt um heiðarleika, ekki sátt um skilning á lýðræði og ekki sátt um samráð. Hún er sátt um að selja fyrirtækið hið fyrsta án þess að lykilspurningum hafi verið svarað. Jafnframt er hún sátt um að viðhalda völdum Framsóknarflokksins í borginni.
Hvað er Reykjavík Energy Invest? Hvað á þetta fyrirtæki? Enn hefur ekki verið lagður fram listi yfir eignir þess. Á að einkavæða hlut fyrirtækisins í Hitaveitu Suðurnesja? Á að einkavæða sérþekkingu Orkuveitu Reykjavíkur? Á að einkavæða fyrirtækið á grundvelli verðmats Hannesar og Bjarna? Hverjir munu kaupa aðrir en þeir sem þegar hafa eignast umtalsverðan hlut í fyrirtækinu? Var samruni fyrirtækjanna löglegur yfir höfuð? Þessum spurningum hefur ekki verið svarað.
Ljóst er að borgarstjóri hefur teflt mjög alvarlega af sér í þessu máli. Hann hefur farið á bak við borgarbúa, samflokksmenn sína innan og utan borgarstjórnar sem og aðra kjörna fulltrúa í borgarstjórn. Hann hefur farið á svig við lög og tekið þátt í ósiðlegu atferli sem ofbýður fólki um allt land. Fólk vill ekki slíka stjórnendur. Borgarbúar treysta ekki slíkum borgarstjóra þótt borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins virðist greinlega ekki gera sömu kröfur."
Ég fór í sunnudagsbíltúr til Þingvalla í dag. Kjörið að nýta góða veðrið og skoða haustlitina í náttúrunni. Fjöldi fólks gerði slíkt hið sama og var gaman að sjá hversu margir voru á þingvöllum.
Það eina sem skyggði á góðan dag var hópur vélhjólamanna sem með einbeittum brotavilja sínum stefni fjölda fólks í stórhættu. Á leiðinni til Þingvalla, skömmu eftir að hafa ekið framhjá Gljúfrasteini brá mér allnokkuð þegar vélhjól þeysti frammúr á gríðarlegum hraða. Ég leit á hraðamælinn og var ég sjálfur á 93.km hraða en gæti vel ímyndað mér að umrætt vélhjól hafi ekki verið á minni hraða en 160km.
En þetta var nú bara sá fyrsti því í kjölfarið fylgdu fleiri hjól á svipuðum hraða, æddu frammúr og svínuðu fyrir bíla, óku glannalega á móti umferð og létu almennt öllum illum látum þarna á veginum.
Ég hef keyrt í mörg ár og lengi vann ég í Keflavík og fór nær daglega um Reykjanesbrautina en hvorki þar né annarsstaðar hef ég orðið vitni að eins miklum glannaskap.
Nú má vissulega færa fyrir því rök að einstaklingar megi reyna að stúta sjálfum sér á eigin vélhjólum, en það er sorglegt þegar dómgreindarleysi fólks er svo mikið að það fer að stofna lífi annarra vegfarenda í hættu.
Þegar að Þingvöllum var komið og við renndum inn að þjónustumiðstöðinni var umrætt vélhjólagengi sem taldi um 10 hjól að tygja sig af stað, enda komið þangað löngu á undan okkur.
Ég steig út úr bílnum og var eitthvað að skoða mig um og njóta veðurblíðunnar þegar maður nokkur sem þarna var spurði hvort gengið hafi ætt frammúr mér líka á leiðinni. Jú rétt var það og var augljóst að fleirum hafði blöskrað en mér. Sagði hann mér síðan eftir að að við tókum tal saman að hann hafi dundað sér við það að skrá niður númer umræddra vélhjóla og ætlaði að senda upplýsingar um málið til lögreglu.
Já glæislegt framtak. Vissulega er ekkert hægt að gera varðandi umræddan hjólatúr vélhjólagengisins en allavega er ekki verra fyrir lögregluna að vita hverjir dólgarnir eru. Þeir gætu þá kannski lagt saman tvo plús tvo þótt síðar verði, eða kannski sent almennt orðaða ábendingu til vélhjólaklúbba sem sumir hverjir segjast vilja vera í samstarfi um bætta umferðamenningu.
Hvað annað getum við almennir vegfarendur gert þegar við verðum vitni að öðru eins? Er ekki ráð að safna saman sem mestum upplýsingum um þessa brjálæðinga?
Rétt er þó að taka það fram að margir voru á ferð á vélhjólum í dag og voru allir aðrir til fyrirmyndar en umrætt vélhjólagengi.
JB
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
5.10.2007 | 14:07
Góð grein prests Fríkirkjunnar
Hjörtur Magni Jóhannsson prestur Fríkirkjunnar skrifaði mjög góða grein sem birtist í Fréttablaðinu í dag. Þar útskýrir hann veraldlegar athafnir í kirkju og lífsafstöðu húmanista.
Hvet ég ykkur ágætu lesendur til að lesa greinina.
Sjá: http://visir.is/article/20071005/SKODANIR03/110050122/-1/SKODANIR05
JB
4.10.2007 | 16:20
Er það þá ekki líka bara í góðu lagi þó það taki konur fimmtíu ár að vinna sér inn mánaðarlaun karla?
Það var einhver Bergsteinn blaðamaður við Fréttablaðið sem var að segja okkur lesendum hversu ógeðslega púkó hún Álfheiður Ingadóttir þingmaður VG er. Ástæðan fyrir þessum púkalegheitum Álfheiðar er sú að hún er ekki sátt við þá misskiptingu veraldlegra gæða sem á sér stað hér á landi þar sem það tekur verkamanninn fimmtíu og bráðum sextíu ár að vinna sér inn fyrir mánaðarlaunum einstakra forstjóra.
Bergsteinn orðar þetta svona: "...brýnt er að allir hafi í sig og á og helst gott betur. En til þess þarf þó ekki nema brotabrot af forstjóralaunum. Hvaða máli skiptir þá hversu lengi verkamaðurinn er að vinna sér inn stjarnfræðilega háar upphæðir?"
Það er bara flott hjá Álfheiði að gagnrýna þetta launarugl sem viðgengst í landinu. Það mælir ekkert með því að í samfélaginu skuli misskipting gæðanna vera svo mikil sem raun ber vitni. Veraldleg gæði eru takmörkuð og það er mjög víða sem skortir fjármagn. Allavega skortir það ekki hjá umræddum forstjórum sem hafa eins á áður sagði 50-60 sinnum meira en verkamaðurinn hefur.
Ég veit eiginlega ekki hvað er með margt af þessu fjölmiðlafólki sem starfar hér á landi. Það er eins og það geti ekki klórað sig út úr yfirborðsmennskunni og gagnrýnisleysinu. Það þykir einhvernveginn allt svo sjálfsagt sem teljast má siðferðilega ámælisvert. Í framhaldi af þessu má nefna þann mannlega harmleik sem átti sér stað hjá þeim vinkonum í þættinum Ísland í dag á Stöð tvö þegar einu viðbrögð þeirra við slagsmálum fullorðinna kvenna í Grænlandi sem sýnt var frá var að flissa og fíflast. Mikið var rætt um það á sínum tíma sem ekki verður endurtekið hér en vart mátti á milli sjá hvort harmleikurinn hafi verið meiri í stúdíóinu á Stöð tvö eða á götu í Grænlandi.
Og nú er það Bergsteinn blaðamaður sem sýnir af sér þessa dásamlegu snilld með launakjörin. Því þykir mér viðeigandi að fá svar frá Bergsteini við eftirfarandi spurningu:
Kæri Bergsteinn, vissulega er brýnt að allir hafi ofan í sig og á og helst gott betur. Væri það því ekki bara gott mál ef launamunur kynjanna yrði svo mikið meiri en hann er í dag eða svo mikill að það tæki konu 50-60 ár að vinna sér inn fyrir mánaðarlaunum karls svo fremi sem hún hefði eitthvað ofan í sig og á og pínulítið betur en það?
Pælið í því.
JB
2.10.2007 | 12:57
Víkingur féll
Ég fylgist ekkert mjög mikið með fótboltanum. Samt veit ég alltaf nokkurn veginn hvernig mínu liði gengur hverju sinni. Og nú er Víkingur fallinn. Það er svo sem í lagi ef við lítum á íþróttir sem skemmtilegt "hobbí" og holla hreyfingu. En ég hef nú grun um að fólk hér í hverfinu hefði almennt óskað félaginu annars en að falla. Nú var í fréttum að þjálfari meistaraflokksins í fótbolta væri hættur og væntanlega ætlar stjórnin að bretta upp ermarnar. En áður en það er gert beinlínis í þágu fullorðinsflokksins þá geri ég það að tillögu minni að Víkingur leggi allt sitt púður í barna og unglingastarf. Hvernig væri að nota þessi tímamót í að gera metnaðarfulla fimm ára áætlun þar sem ofuráhersla er lögð á barna og unglingastarfið. Ef allt gengur sinn vanagang í veröldinni munu börnin verða fullorðin og komast í umræddann meistaraflokk og þá ræðst gengið af því hvernig sáð hafði verið í upphafi.
Fyrir utan það að íþróttafélag sem leggur mjög mikinn metnað í barna og unglingastarf er náttúrulega til fyrirmyndar.
Höfum við Víkingar nokkru að tapa? Allavega er ég viss um að börnin yrðu ánægð.
JB
24.9.2007 | 16:20
Mikill áhugi á veraldlegum athöfnum á vegum Siðmenntar
Eftir fréttir af veraldlegu brúðkaupi sem Siðmennt hélt á laugardaginn hefur áhuginn á málinu verið mikill. Fyrir þau ykkar sem eruð að spá í svona athafnir bendi ég á eftirfarandi vefsíður sem gefa góðar hugmyndir að veraldlegum athöfnum:
British Humanist Association í Bretlandi http://www.humanism.org.uk/site/cms/contentChapterView.asp?chapter=310
Human Etisk Forbund í Noregi http://www.human.no/templates/Page____170.aspx
Secular Celebrations í Bandaríkjunum http://www.secular-celebrations.com/
Eftir vel heppnaða athöfn á laugardaginn mun Siðmennt halda áfram að þróa veraldlegar giftingarathafnir, útfarir og nafngiftir hér á landi. Það er löngu kominn tími á slíkar athafnir hér á landi. Nágrannalönd okkar hafa staðið fyrir svona athöfnum í áratugi.
JB
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Illugi Gunnarsson er einn þeirra sem vill mæta í skólana og flokka kennara líkt og kjötskrokkar eru flokkaðir í úrvalsflokk, fyrsta flokk, annan osfrv. Vill hann greiða laun í samræmi við flokkun sína og gangi honum vel. Í Fréttablaðinu í dag kemur þetta sjónarhorn hans berlega í ljós. Hann vill kennara metna þannig að úrvalskennarar fái góð laun og kennarar í lakari flokkum fái slakari laun. Hvernig meta skal gæðin er ekki ljóst, enda er maðurinn duglegur að þykjast hafa vit á ýmsum hlutum án þess að hafa nokkurt vit á þeim.
Ég er, kæri Illugi alveg til í það að athuga þessa hugmynd þína um flokkun kennara og raða þeim í ýmsa launaflokka ef þú ert til í að byrja á annari stétt í landinu, nefnilega alþingismönnum. Alþingismenn standa sig mismunadi vel, hversvegna ekki að flokka þá eftir frammistöðu og greiða þeim laun í samræmi við það. Byrjaðu á þinni eigin stétt og reyndu síðan að hafa vit á skólamálum.
Jóhann Björnsson kennari