9.4.2008 | 14:46
Hinn grunaði er útlendingur
Athyglisverð ráðstefna föstudaginn 18. apríl.
Ráðstefna um umfjöllun fjölmiðla um innflytjendur og afbrot verður haldin í Salnum, Kópavogi, föstudaginn 18. apríl 2008 kl. 13.00-17.45. Alþjóðahús, Félags- og tryggingamálaráðuneytið/ Fjölmenningarsetur, lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, Blaðamannafélag Íslands og Kópavogsbær standa að ráðstefnunni og er markmiðið að opna umræðuna meðal hlutaðeigandi. Fundarstjóri er Birgir Guðmundsson, lektor í fjölmiðlafræði við Háskólann á Akureyri.
13.00 Setning - Einar Skúlason, framkvæmdastjóri Alþjóðahúss
13.05 Ávarp - Jóhanna Sigurðardóttir, Félags- og tryggingamálaráðherra
13.10 Eru afbrot útlendinga öðruvísi en Íslendinga? - Rannveig Þórisdóttir, deildarstjóri upplýsinga-og áætlanadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu
13.30 Afbrot, staðalmyndir og innflytjendur - Helgi Gunnlaugsson, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands
13.50 Sjónarhorn blaðamannsins - Rúnar Pálmason, blaðamaður hjá Morgunblaðinu
14.10 The media- a tool or an obstacle for integration? (Fjölmiðlar - hjálp eða hindrun í aðlögun innflytjenda?) - Arash Mokhtari, verkefnisstjóri hjá Quick response í Svíþjóð
15.00 Innflytjendur og erlent vinnuafl í fjölmiðlum 2007- Magnús Heimisson, forstöðumaðurFjölmiðlagreininga
15.20 Kaffihlé
15.35 Málstofa I - Umræðan á götunni/bloggið
Árni Matthíasson, verkstjóri mbl.is - Bloggið: Ábyrgðarlaust hjal?
Joanna Dominiczak, kennari og stjórnarmaður Samtaka kvenna af erlendum uppruna - Útlendingar í fjölmiðlum
Málstofustjóri: Þór Jónsson, forstöðumaður almannatengsla í Kópavogi
Málstofa II - Formleg upplýsingagjöf
Gunnar Rúnar Sveinbjörnsson, kynningarfulltrúi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu - Hvað má lögreglan segja?
Áslaug Skúladóttir, formaður Félags fréttamanna og fréttamaður á Útvarpinu - Skiptir þjóðerni fólks máli í fréttum af afbrotum?
Málstofustjóri: Arna Schram, formaður Blaðamannafélags Íslands
16.15 Kaffihlé
16.25 Samantekt frá málstofum
16.45 Pallborðsumræður
Dane Magnússon, formaður Félags Anti-rasista
Þorbjörn Broddason, prófessor við Háskóla Íslands
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu
Jón Kaldal, ritstjóri Fréttablaðsins
17.15 Ráðstefnuslit - Gunnar Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs
17:20 Léttar veitingar
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Virkilega athyglisverð dagskrá sem boðið verður upp á á Kópavogsfundinum.
Nákvæmlega þetta tema hefur verið í umræðunni um í norsku fjölmiðlum af og til í vetur.
Það er nefninleg svo oft sem fréttir af glæpum enda á, "árasarmennirnir voru frá Pakistan" eða "þjófurinn kemur upprunalega frá Sómalíu"
Það þykir aldrei vert að segja frá því ef morðinginn er af norksum upruna eða íslenskur maður nauðgaði tveimur konum á ferjunni milli Óslóar og Hirtshals. En alltaf er tekið fram ef misyndisfólkið kemur frá A-Evrópu eða öðrum heimsálfum.
GÞÖ
http://orangetours.no/
Dunni, 10.4.2008 kl. 13:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.