Er meistaraflokkur karla eitthvað merkilegri?

Tímarit knattspyrnudeildar Víkings er nýkomið í hús. Ágætt rit þar sem gerð er grein fyrir starfi deildarinnar og birtar myndir af öllum liðum Víkings. Eitt vekur samt sem áður athygli mína og það er að í augum forráðamanna knattspyrnunnar hér í Fossvoginum eru ekki allir iðkendur félagsins taldir jafn merkilegir. Aðeins eitt lið fær stærri mynd en önnur og það er meistaraflokkur karla. Hann fær miðopnu á meðan öll önnur lið fá hálfa síðu. Ég fann blaðið frá því í fyrra og þá er sami háttur hafður á. Meistaraflokkur karla  var líka þar í miðopnu á meðan önnur lið fengu hálfa síðu. Það sem meira er að á forsíðu blaðsins í fyrra var einnig mynd af meistaraflokki karla og í ár er mynd úr leik meistaraflokksins á forsíðu blaðsins.

Nú spyr ég nokkurra spurninga:

Er meistaraflokkur karla eitthvað merkilegri heldur en önnur lið sem Víkingur teflir fram? Ef svo er að hvaða leiti?

Hversvegna má ekki t.d. hafa 8.flokk drengja eða kannski 3. flokk kvenna í miðopnu eða eitthvað annað lið?

Væri ekki sniðugt að skipta miðopnunni á milli liða á milli ára þannig að það væri aldrei sami flokkur sem fengi flennistóra mynd af sér í miðopnu í þessu blaði knattspyrnudeildar Víkings.

Og síðast en ekki síst: Hversvegna er menningin í kringum fótboltann svona ægilega gamaldags (og hallærisleg)?

JB

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

uuu.. mér finnst svarið ansi augljóst til að segja sannleikan.. það liggur lang mestur peningur í meistaraflokki karla í knattspyrnu og það má ekki gleyma að íþróttafélög eru líka fyrirtæki... þetta er einsog Nokia myndu gefa út árlegt tímarit og hafa flestar myndir af stígvélunum sínum í stað síma, þó svo að símarnir þeirra séu á bakvið lang mestan hagnað þeirra..

Jóhann Ingi (IP-tala skráð) 10.7.2007 kl. 00:56

2 Smámynd: Rósa Harðardóttir

Ég er sammála þér Jóhann auðvitað á að gera öllu iðkendum jafn hátt en þetta er svo sannarlega ekki bundið við Víking, án þess að hafa gert könnun á því get ég ímyndað mér að þetta sé svona hjá fleiri félögum.  Reyndar hefur mitt félag Fylkir kappkostað við að hafa ungviðið á forsíðum blaðanna.  Jóhann Ingi bendir réttilega á að mestur peningur liggur  í meistaraflokki karla og þess vegna gangi allt út á það.  En erfitt verður að reka meistaraflokk karla ef ekki er haldið vel utan um yngri flokka starfið og hrós og eftirtekt er það sem gengur í unga iðkendur.  Þeir verða glaðir og upp  með sér ef myndir, greinar og viðtöl virtast við þá í hverfisblöðunum.  Og ekki bara þeir bestu.  Ef eftir þeim er tekið er það hvatning í að halda áfram og enda jafnvel í meistaraflokki eða enn ofar. 

Rósa Harðardóttir, 10.7.2007 kl. 13:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband