Fyrir um áratug stundaði ég nám við skóla í Belgíu sem heitir Katholieke Universiteit Leuven. Skóli þessi hefur frá árinu 1425 verið eitt helsta fræðasetur kaþólskra manna í heiminum þar sem kaþólikkar hvaðanæva að úr heiminum sækja nám.
Ég er ekki kaþólikki og reyndar ekki kristinn en hafði engu að síður gott af náminu hjá kaþólikkunum. Ástæðan fyrir því að ég er að rifja upp þennan tíma minn í Belgíu kemur til af þeim ágreiningi sem birtur var á forsíðu Fréttablaðsins í dag. Þar telja prestarnir Geir Waage og Hjálmar Jónsson það alveg út í hött að keppni um fyndnasta mann landsins sé haldin á föstudaginn langa. Hjálmar segir fólk vera að skjóta sig í fótinn með athæfinu og Geir þetta fáránlegt þar sem þetta sé einn af örfáum helgidögum sem eru lögvarðir, en bannað er að halda skemmtanir á opinberum veitingastöðum á þessum degi þó að kvikmyndasýninar, tónleikar og leiksýningar séu heimilar.
En aftur að Belgíu. Þótt stjórnendur og starfsmenn háskólans hafi verið kristnir og tækju trú sína afar hátíðlega þá var nú ekkert stress í mannskapnum vegna ýmissa daga kirkjuársins. Ég man nefnilega sérstaklega eftir föstudeginum langa þarna úti. Þá var bara ósköp venjulegur skóladagur eins og flesta aðra daga. Þrátt fyrir föstudaginn langa þótti ekki ástæða til þess að taka frí og leggja lífið til hliðar. Eitthvað myndu þeir Geir og Hjálmar væntanlega segja ef háskólamenn á Íslandi gerðu tilraun til að reyna eitthvað í líkingu við það sem belgísku kaþólikkarnir (sem margir voru einnig starfandi prestar) gerðu.
En burtséð frá því hvernig þetta er í Belgíu þá vakna óneitanlega áleitnar spurningar þegar svokallaðir helgidagar eru til umræðu. Sú spurning sem ég tel að sé brýnast fyrir menn að svara er þessi:
Samkvæmt lögum er föstudagurinn langi einn af helgidögum Þjóðkirkjunnar hversvegna þurfa þá þeir sem ekki eru í Þjóðkirkjunni að beygja sig undir þá reglu að mega ekki taka þátt í eða standa fyrir skemmtunum á opinberum stöðum?
Er ekki kominn tími til að rúm verði fyrir fleiri en einn sið í landinu?
JB
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ein besta bók sem ég hef lesið er eftir nunnu, Karol Jackowski. Ten Fun Things to Do Before You Die. Hún hefur nú aldeilis ekki mikið á móti því að fólk skemmti sér. Enda hef ég aldrei skilið af hverju sumum kristnum finnst svona mikilvægt að vera fýlulegur, eins og maður komist ekki til himna án þess?
Fríða, 4.4.2007 kl. 23:05
Það er meinholt að hlægja og sérstaklega þegar fólk er eitthvað "down".. ef eitthvað er þá ætti föstudagurinn langi að vera hinn þjóðlegi hláturdagur..
Spurning mín er þessi..
Verður hann þá nokkuð tekinn af okkur sem frídagur..? hmm
Björg F (IP-tala skráð) 5.4.2007 kl. 03:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.